06.09.1917
Efri deild: 49. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1282 í B-deild Alþingistíðinda. (1031)
64. mál, tollalög
Frsm. (Halldór Steinsson):
Eins og sjá má af frv. hefir háttv. Nd. vakið upp aftur þann draug, er þessi háttv. deild kvað svo rækilega niður við síðustu umræður. Háttv. Nd. vill halda dauðahaldi í tóbakstollinn.
Fjárhagsnefnd hefir nú athugað frv. á ný, og hefir ekki breytt skoðun sinni á þessu atriði. Nefndin álítur ekki fært að hækka eins mikið og hjer er farið fram á toll á tóbaki, þegar þess er gætt, að allur almenningur notar það sem hverja aðra nauðsynjavöru. Tollurinn myndi og koma jafnvel harðara niður á fátæklingum, er tóbaks neyta, heldur en efnamönnum, þar sem ætla má, að hækkunin myndi ekki draga úr tóbaksnautn, svo að nokkru nemi.
Annars hafa verið færð rök fyrir þessu hjer í deildinni, bæði af mjer og öðrum, og hirði jeg ekki að endurtaka þau. Vona jeg, að háttv. deild líti mál þetta sömu augum sem áður og samþykki frv. í þeirri mynd, er það fór hjeðan, með því að greiða brtt. nefndarinnar atkvæði.
Seinni liður brtt. háttv. þm. Ísaf. (M. T.) á þgskj. 751 er samhljóða brtt. nefndarinnar, og fellst hún því á hann. Hins vegar sjer nefndin ekki ástæðu til að hækka meir toll af vindlum og vindlingum en gert er í frv., og getur hún því ekki verið samþykk fyrri brtt. á þgskj. 751.