06.09.1917
Efri deild: 49. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1283 í B-deild Alþingistíðinda. (1032)
64. mál, tollalög
Magnús Torfason:
Að jeg ekki eingöngu kom með síðari brtt. á þgskj. 751 stafar af því, að háttv. Nd. virðist leggja mikið kapp á að hækka tollinn á tóbaki. Jeg leit svo á, að yrði tóbakstollurinn hækkaður, væri sjálfsagt að hækka vindlatollinn enn meir. Deildarmenn verða að ráða það við sig, hvort þeir vilji hætta á, að afl muni vera til þess að láta frv. standa óbreytt, er það kemur fyrir sameinað þing. En verði þeir í meiri hluta þar, sem hækka vilja toll af tóbaki, er aftur álitamál, hvort ekki eigi strax að hækka vindlatollinn hjer.
Síðan mál þetta var hjer á ferðinni hefi jeg athugað annað tekjufrv., er liggur fyrir hjer í háttv. deild. Af tvennu illu kýs jeg heldur að afla landssjóði tekna með þessu frv. en á þann hátt, sem hitt frv. fer fram á, nema það taki stórmiklum breytingum til bóta hjer í deildinni.
Jeg vil enn leggja áherslu á, að mjer er ekkert kappsmál, að brtt. mín á þgskj. 751 sje samþykt, nema frá því sjónarmiði, að hækkun á tóbakstollinum verði aftur sett inn í frv. í sameinuðu þingi.