07.08.1917
Neðri deild: 27. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1320 í B-deild Alþingistíðinda. (1090)
72. mál, hagnýt sálarfræði
Frsm. (Bjarni Jónsson):
Ætlar háttv. þm. (J. B.) að greiða atkvæði með eða móti frv.? (J. B.: Það kemur bráðum í ljós). Það er það, sem máli skiftir nú. Annars vildi jeg kenna honum að kljúfa nefndir, að gera það á nefndarfundum og koma hreint til dyranna, en svíkjast ekki undan merkjum þegar málið er komið inn í deild.
Öðru ætlaði jeg ekki að svara.