08.08.1917
Neðri deild: 28. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1345 í B-deild Alþingistíðinda. (1126)
74. mál, sveitarstjórnarlög
Magnús Guðmundsson:
Jeg ætla að leyfa mjer að gera fyrirspurn til háttv. 1. S.M. (Sv. Ó.) um, hvernig hann hafi reiknað út, að með þessari hækkun á kaupi sýslunefndarmanna hækkuðu útgjöld hreppsins um 100200 kr. á ári. Jeg skil ekki, hvernig hann hefir fengið það út, því að sýslufundir standa vanalega ekki nema 67 daga, og með 1 kr. hækkun á dag getur árshækkunin í krónutali orðið jöfn dagatölunni, sem sje 67 kr. á hvern hrepp á ári, auk ferðadaga, sem eru mismunandi. Þessi reikningur 1. þm. S. M. (Sv. Ó.) er því ekki bygður á neinu nema bláberum miskilningi.