25.07.1917
Neðri deild: 17. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1352 í B-deild Alþingistíðinda. (1148)

76. mál, mjólkursala í Reykjavík

Frsm. (Einar Arnórsson):

Fyrir mína og nefndarinnar hönd get jeg lýst yfir því, að vjer munum taka öllum bendingum háttv. 1. þm. Reykv. (J. B.) með þökkum, og væri oss geðfeldast, að háttv. þm. (J. B.) vildi bera sig saman við oss um væntanlegar brtt. sínar.