27.08.1917
Neðri deild: 44. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1371 í B-deild Alþingistíðinda. (1191)

80. mál, notkun bifreiða

Framsm. (Einar Arnórsson):

Háttv. Ed. hefir ekki gert neina efnisbreytingu á frv., sem máli skiftir, aðra en að færa ökuhraðann upp í 12 km. á klukkustund., og finst allsherjarnefnd Nd. vel mega ganga að henni. Hinar brtt. telur nefndin fremur til bóta en hitt, og eru það aðallega formbreytingar.

Jeg sje ekki ástæðu til að fjölyrða, og vil mælast til, að frv. verði afgreitt hjeðan.