11.08.1917
Neðri deild: 31. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1464 í B-deild Alþingistíðinda. (1378)

131. mál, seðlaupphæð

Forsætisráðherra (J. M):

Þess hefir áður verið getið, að til stæði að skipa þessu máli einhvern veginn svo, að yrði til frambúðar. Hvernig sú skipun verður get jeg ekki um sagt hjer, en vilji háttv. 1. þm. N.-M. (J. J.) fá að vita, hvernig sakir standa nú, þá getur hann snúið sjer til ráðuneytisins. Jeg get bætt því við, að jeg er alveg sammála háttv. frsm. (M. G.) um, að þetta frv. beri að skoða sem hverja aðra dýrtíðarráðstöfun.