12.09.1917
Efri deild: 55. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1520 í B-deild Alþingistíðinda. (1435)
146. mál, almenn hjálp
Atvinnumálaráðherra (S. J.):
Mjer er alveg óskiljanlegt, hvernig hv. þm. Vestm. (K. E.) getur dregið þá hugsun úr orðum mínum, að þessi hv. deild eigi ekki að skifta sjer af fjármálum. Það hefi jeg aldrei sagt; en jeg sagði, að háttv. Nd. væri þungamiðja þingsins í fjármálum. Og jeg er ekki einn um þessa skoðun. Stjórnarskráin gerir ráð fyrir því, að Nd. eigi að vera þungamiðja þingsins að því er til fjármála kemur.
Um brtt. nefndarinnar hefi jeg það að segja, að mjer virðast þær vera til bóta og gera frv. skýrara. Ein þessara brtt. fer fram á, að lækkað sje verð á tiltekinni vörutegund, til þess að almenningur eigi kost á að afla sjer hennar. Jeg skal ekki fara í neinn meting um það, hvort þessi lækkun kemur einni stjett manna fremur að gagni en öðrum stjettum, enda finst mjer slíkur metingur mjög svo óviðeigandi, eins og hjer stendur á. Því að hjer er að ræða um hjálp í neyð, og landið verður að rjetta hjálparhönd, þegar svo er ástatt. Þjóðfjelagið verður að bera sameiginlega þær byrðar, sem af neyðinni stafa.