27.08.1917
Neðri deild: 44. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1579 í B-deild Alþingistíðinda. (1503)

162. mál, bráðabirgðahækkun á burðargjaldi

Bjarni Jónsson:

Jeg vil að eins geta þess, að jeg hefi sjeð fram á, að það yrði ekki bærilegt blaðaútgefendum, er gefa út blöð og tímarit, að gjalda þessa hækkun undirbúningslaust, því að þeim er ómáttugt að setja upp verðið þegar. Vona jeg, að menn fallist á brtt.