08.08.1917
Neðri deild: 28. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1742 í B-deild Alþingistíðinda. (1652)
23. mál, Tunga í Skutulsfirði
Einar Arnórsson:
Mig langaði til að bera fram eina fyrirspurn. Jeg er, eins og fleiri, lítt kunnugur þarna vestra, og þótt skjöl liggi frammi á lestrarsal, þá hafa menn ekki tíma til að kynna sjer þau öll.
Mín fyrirspurn er þá þessi: Hver á þetta skógarítak, sem nefnt er í frv.? Hvar liggur það? Um þetta þætti mjer vænt um að fá upplýsingar.