08.08.1917
Neðri deild: 28. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1743 í B-deild Alþingistíðinda. (1654)

23. mál, Tunga í Skutulsfirði

Einar Arnórsson:

Jeg verð nú að segja það, að jeg er lítið fróðari. Veit það eitt, að landið er eign einhverrar kirkju. En fyrst að nú svo er, að jörðinni heyrir ekki til þetta ítak, þá skilst mjer sem rjettast væri að draga það frá kaupverði hennar, því að það er þá mínus en ekki plús við verðmæti hennar.