04.08.1917
Efri deild: 22. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1752 í B-deild Alþingistíðinda. (1695)

27. mál, bæjarstjórn Ísafjarðar

Magnús Kristjánsson:

Jeg vildi að eins leyfa mjer að leggja þá fyrirspurn fyrir háttv. frsm. (M. T.), hvort það sje rjett, sem stendur í brtt. nefndarinnar, að orðin »árið 1918— eftir 2 ár« falli burt úr 6. gr. frv. (M. T.: Jú, það er rjett). Ef svo er, finst mjer sambandið milli fyrri hluta greinarinnar og niðurlagsins nokkuð laust. Jeg vil leyfa mjer að beina því til háttv. nefndar, hvort hún vilji ekki athuga þetta áður en gengið verður til atkvgr.