06.08.1917
Efri deild: 23. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1755 í B-deild Alþingistíðinda. (1700)

27. mál, bæjarstjórn Ísafjarðar

Framsm. (Magnús Torfason):

Jeg hefi ekki neinu sjerstöku við að bæta það, sem sagt var við fyrri umr. málsins, nema því, að samkvæmt bendingu, sem gefin var við 2. umr., þá hefir nefndin komið með brtt. við 6. gr. frv. Vona jeg, að háttv. deild sje sammála um það, að brtt. þessi sje til bóta.

Óska jeg svo, að frv. nái fram að ganga.