10.07.1917
Efri deild: 6. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1759 í B-deild Alþingistíðinda. (1716)

39. mál, fasteignamat

Forseti:

Háttv. 4. landsk. þm. (G. G.), sem er flm. þessa máls, getur ekki komið á fund í dag; þurfti að vera við jarðarför.

Hann hefir beðið mig, fyrir sína hönd, að óska þess, að mál þetta fái að ganga til 2. umr., svo að hann geti gert grein fyrir því, og háttv. deild geti þá sett málið í nefnd eða gert annað við það, eftir því er háttv. þm. líst.