08.08.1917
Efri deild: 25. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1797 í B-deild Alþingistíðinda. (1735)

39. mál, fasteignamat

Frsm. meiri hl. (Guðmundur Ólafsson); Jeg vil að eins bera hönd fyrir höfuð meiri hl. með örfáum orðum. Jeg verð að mótmæla því, að minni hl. nefndarinnar (G. G.) hafi breytt til um stefnu vegna meiri hl., hvað jarðabætur snertir; fremur gæti skeð, að segja mætti það um hús leiguliða.

Eftir framkomu háttv, minni hl. (G. G.) ætti það ekki að vera vonlaust, að háttv. 1. þm. Rang. (E. P.) gæti snúið honum í sitt gamla far.