07.09.1917
Neðri deild: 54. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1832 í B-deild Alþingistíðinda. (1781)
54. mál, húsmæðraskóli á Norðurlandi
Frsm. (Bjarni Jónsson); Við höfum í nál. látið í ljós skoðun okkar á þessu máli, og skal jeg því ekki tefja tímann með langri ræðu, því að jeg ætla, að það sje nægilega skýrt í nál., hvers vegna við viljum gera breytingu á frv. Nefndin vill láta málið ganga fram, af því að hún álítur sjálfsagt að fara að óskum svo margra kvenna, sem beðið hafa um skóla fyrir húsmæður í þessum landsfjórðungi. Jeg vona, að háttv. deild láti frv. ganga fram óáreitt, eftir því sem nefndin hefir lagt til. Skal jeg svo ekki halda lengri ræðu að sinni.