24.08.1917
Efri deild: 38. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1959 í B-deild Alþingistíðinda. (2002)
128. mál, stofnun landsbanka
Eggert Pálsson:
Jeg gat þess við 2. umr. málsins, að mjer þætti nokkuð stórt á stað riðið, þar sem farið væri fram á að auka útgjöldin til stjórnar bankans um helming, úr 14000 kr. upp í 28000 kr. Þetta þótti mjer ærið stórt spor, enda þótt jeg gæti viðurkent, að bætt væri úr stjórnarfyrirkomulagi bankans með því að bæta við þriðja bankastjóranum. En jeg áleit þessa umbót ekki svo dýrmæta, að jeg vildi kaupa hana fyrir 14000 kr. á ári, sjerstaklega ef þess væri gætt, að hjer er um heldur litla peningastofnun að ræða. Enda lagði háttv. frsm.
(M. T.) áherslu á það, að bankann hefði vantað fje til umráða á liðnum árum. Og enn þá eru ekki opnir neinir vegir til þess að auka fjármagn bankans. Jeg álít þá ráðstöfun þess vegna óverjandi, að auka stjórnarkostnaðinn nú um helming.
Nú hafa komið fram nýjar brtt. á þgskj. 502, þar sem stilt er til hófs um kostnaðinn. Þar er farið fram á, að bankastjórarnir hafi 6000 kr. árslaun, hver um sig, í stað 8000 kr., sem gert er ráð fyrir í nefndarálitinu. Og sömuleiðis er gert ráð fyrir, að gæslustjórarnir, sem ætlaðar voru samtals 4000 kr., falli burt.
Hjer er sýnilega önnur aðferð höfð en fram kemur í nefndarálitinu, meiri nærgætni sýnd í því, hversu mikið fje þessi stofnun getur hæfilega goldið í stjórnarkostnað. Jeg fyrir mitt leyti álít, að svo sje, eftir því sem ástatt er hjer hjá okkur, að við megum ekki fremur í þessu tilfelli en öðrum miða við það, sem kann að eiga sjer stað hjá okkur miklu auðugri þjóðum. Jeg tel, að 6000 kr. árslaun sje nægilegt til þess, að þessir menn geti lifað efnalega sjálfstæðu lífi hjá okkur, og veit ekki til þess, að margur starfi sje betur launaður hjer hjá oss. Þess vegna legg jeg áherslu á, að þessi brtt. nái samþykki þessarar háttv. deildar, og sömuleiðis það, að gæslustjórastarfið falli burt, því að jeg verð að telja það óþarft, þegar bankastjórarnir verða þrír.
Með því að halda fast við þessa brtt., spörum við fyrir bankans hönd 10000 kr. á ári, en höldum því gagni, sem væntanlega verður við að bæta 3. bankastjóranum við, en fella gæslustjórana burt.
Ef þessi brtt. verður samþykt, get jeg fyrir mitt leyti greitt atkvæði með frv., annars ekki.