01.09.1917
Neðri deild: 49. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 2044 í B-deild Alþingistíðinda. (2051)
139. mál, útmælingar lóða
Bjarni Jónsson:
Jeg er dauður og afturgenginn, en ætla að eins að benda á, að það er ekki neitt einstakt, þótt jeg álíti það stjórnarskrárbrot að gefa út almenn heimildarlög um sölu þjóðjarða, eða þessi hjer til eignarnáms. Jeg er ekki einn með þá skoðun á móti háttv. 2. þm. Árn. (E. A.), og hann getur, meira að segja, ekki haldið allri lögfræðingafylkingunni óskertri í kringum sig, því að sannorður maður hefir sagt mjer, að Magnús heitinn Stephensen hafi altaf talið lögin um sölu þjóðjarða stjórnarskrárbrot. Þar hefi jeg þó einn lögfræðing með mjer, og get nú slegið hv. 2. þm. Árn. (E. A.) með einu því nafni, sem hann vildi slá mig áðan með, ranglega þó.