23.08.1917
Neðri deild: 41. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 2103 í B-deild Alþingistíðinda. (2154)

110. mál, fátækralög

Pjetur Ottesen:

Það var að eins smáathugasemd. Jeg vildi taka það fram, að það fer á milli mála hjá framsm., háttv. 1. þm. Skagf. (M. G.), að jeg væri ekki ósamþykkur niðurlagi till., sem sje því, að nefndin sæi ekki ástæðu til að samþykkja hana.

Jeg tók þetta skýrt fram þegar jeg skrifaði undir nál., og furða jeg mig því á þeim ummælum hans (M. G.), er að þessu lutu.