13.08.1917
Neðri deild: 32. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 83 í C-deild Alþingistíðinda. (2462)
143. mál, verðhækkunartollur
Fjármálaráðherra (B. K.):
Jeg hefi tekið það fram áður, að stjórnin hefir ekki bundið sig við að koma fram með öll frv. sín á neinum vissum tíma, og ætlar ekki að gera það. Það er því ekki ástæða fyrir hv. þm. V.-Sk. (G. Sv.) að ásaka hana fyrir að koma ekki fyr fram með frv. um framlenging á vörutollinum. Það voru ekki heldur nema tíu dagar, eða svo, af þingi, þegar stjórnin kom fram með frv. 10. júlí sótti hún um leyfi konungs til að mega bera það fram.
Þm. V.-Sk. (G. Sv.) sagði, að tekjur væru áætlaðar ofháar og gjöld oflág í fjárlagafrv. stjórnarinnar. Jeg vil að eins benda honum á, að hann veit ekkert, hvernig tekjurnar líta út 1918 eða 1919. Það veit enginn, svo að það verður ekki af honum heimtað. Stjórnin gerir ekki kröfu til, að menn haldi, að henni sje kunnugt um það. Hún hefir að eins áætlað tekjurnar með tilliti til þess, að útvegurinn gangi eins og venjulega. En ef svo verður, er enginn vafi á, að tekjurnar eru varlega áætlaðar.
Jeg þarf ekki að svara því aftur, hvers vegna stjórnin hafi ekki borið fram ný tekjufrv. Þess þurfti ekki, fyrst stjórnin ætlaði sjer ekki að leggja neina peninga fyrir. Það er ekki venja að safna neinum varasjóði. Jeg get líka trúað, að það hefði heyrst hljóð úr horni, ef stjórnin hefði farið að koma með skattafrv. án þess að útgjöldin heimtuðu það.