03.08.1917
Efri deild: 21. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 212 í C-deild Alþingistíðinda. (2571)

36. mál, verðhækkunartollur

Atvinnumálaráðherra (S. J.):

Jeg skil ekki, hvernig hv. þm. Ak. (M. K.) getur fengið það út, að jeg hafi dregið skakka ályktun út úr forsendunum. Jeg talaði hvergi um neinn ákaflega mikinn gróða kaupmanna á ullinni. Þvert á móti. Annars vona jeg, að þingritararnir hafi náð ræðu minni, svo að menn geti sjeð það í þingtíðindunum á sínum tíma, hvort jeg hafi dregið skakkar ályktanir eða ekki, og hins vegar, hversu haldgóðan stað hv. þm Ak. (M. K.) hefir fundið orðum sínum um þetta atriði.