02.08.1917
Neðri deild: 23. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 457 í C-deild Alþingistíðinda. (2777)
107. mál, merkjalög
Forseti:
Þess skal getið í sambandi við ræðu hv. þm. S.-Þ. (P. J.), að hvað sem líður frv. því, sem hjer liggur fyrir, þá verður því ekki neitað, að það kemur stundum fyrir, að hin lögskipaða greinargerð fyrir frv. er ekki fullnægjandi. Hann (P. J.) benti á það ráð, til að sporna við þessu, að forseti tæki upp þann sið að vísa slíkum frv. frá. Það hygg jeg að ekki yrði vinsælt, og ef ágreiningur yrði, gæti það orkað tvímælis, hvort alls kostar heppilegt væri að leggja fullnaðarúrskurð í þessu. efni á vald forseta. Við undirbúning þingskapa þeirra, er nú gilda, kom það til tals, að skipa ætti sjerstaka þingnefnd til að skera úr, hvort frv. væru frambærileg eða ekki. En það fyrirkomulag þótti ofmikil takmörkun á frumkvæðisrjetti þingmanna. Jeg hygg, að eina ráðið sje, að þingmenn sjálfir taki sjer fram um þetta og hafi það hugfast að gera sæmilega grein fyrir hverju frv., sem þeir flytja.