06.07.1917
Efri deild: 4. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 637 í C-deild Alþingistíðinda. (2927)

24. mál, sameining Ísafjarðar og Eyrarhrepps

Flm. (Magnús Torfason):

Jeg skal geta þess, að tillögur um sameininguna voru samþyktar á fundi hreppsnefndarinnar með 4 atkv. gegn 3 og þaðan af fleiri.

Jeg skil ekki ummæli hv. 4 landsk. þm. (G. G.) um þrælakaup á Hnífsdælum. Þau koma engum til hugar. Og jeg má fullyrða, að Hnífsdælir munu ekkert þakklátir hv. 4. landsk. þm. (G. G.) fyrir umhyggju hans fyrir þeim í þessu máli.