30.08.1917
Neðri deild: 47. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 725 í C-deild Alþingistíðinda. (3029)

119. mál, hafnarlög fyrir Ísafjörð

Frsm. (Jörundur Brynjólfsson):

Fyrir hönd nefndarinnaar get jeg ekki sagt neitt um þessa ósk háttv. þm. (B. J.), því að jeg hefi ekki átt kost á að bera mig saman við hana. En að því er mig snertir sje jeg enga ástæðu til þess. Háttv. Ed. hefir haft mál þetta lengi undir höndum og mun hafa íhugað það vandlega, og auk þess eru hafnarlög þessi lík öðrum hafnalögum, sem samþykt hafa verið hjer í þinginu.