12.09.1917
Neðri deild: 58. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 773 í C-deild Alþingistíðinda. (3080)
189. mál, frestun á skólahaldi
Einar Arnórsson:
Jeg skal ekki heldur lengja umr., því að hv. deild hefir þegar gengið frá málinu með þingsályktun þeirri, sem samþykt var 1. sept., um að heimila það, sem hjer er skipað, ef frv. þetta verður að lögum. Var rætt ítarlega um málið í sambandi við þingsályktunartillöguna, og munu þær umr. öllum í fersku minni. Ástæður hafa síðan ekki breyst til hins verra, heldur hins betra, þar sem komið hafa síðan 2 stórir kolafarmar. Jeg ætla ekki að dæma um nauðsynina að öðru leyti, en vil, að deildin haldi við þá ályktun, sem hún hefir áður gert, og stjórnin ráði svo fram úr málinu á sína ábyrgð.
Jeg vil ekki lengja umr., en vil leyfa mjer að bera fram svo hljóðandi rökstudda dagskrá:
Með skírskotun til þingsályktunartillögu um skólahald næsta vetur, er samþykt var hjer í deild 1. þ. m., og í því trausti, að stjórnin skipi máli þessu á forsvaranlegan hátt, tekur deildin til meðferðar næsta mál á dagskrá.