12.09.1917
Neðri deild: 58. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 775 í C-deild Alþingistíðinda. (3082)
189. mál, frestun á skólahaldi
Fjármálaráðherra (S. E.):
Jeg hefi lýst afstöðu minni til þessa máls t hv. Ed., og geri ráð fyrir, að öllum hv. deildarmönnum sje hún kunnug, og sje því
ekki ástæðu til að endurtaka hjer það, sem jeg sagði í háttv. efri deild. Forsætisráðherra hefir tekið fram sína skoðun, og sömuleiðis atvinnumálaráðherra, er virðast báðir sammála. Jeg vil endurtaka hjer það, sem jeg tók fram í háttv. Ed., að jeg mun beygja mig fyrir þeirri niðurstöðu, sem Alþingi kemst að í þessu máli, þótt önnur verði en jeg mundi helst kjósa, þar sem jeg lít svo á, að mál þetta skifti ekki svo miklu, að rjett sje, á tímum jafnalvarlegum eins og nú er um að ræða, að gera það að fráfarartriði.
En um leið vil jeg taka það fram, að svo framarlega sem háttv. Nd., eftir að hafa heyrt aðstöðu meiri hluta stjórnarinnar til málsins, víkur frumvarpinu frá með rökstuddri dagskrá, þá skil jeg það svo, að hún hafi valið þá leið í málinu, sem meiri hluti stjórnarinnar óskar að farin sje.