04.09.1917
Neðri deild: 51. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 804 í C-deild Alþingistíðinda. (3104)

40. mál, umsjón á landssjóðsvöru

Frsm. meiri hl. (Þorsteinn Jónsson):

Jeg hefi borið mig saman við meiri hluta bjargráðanefndarinnar, og fellst hann allur á að fylgja þeirri rökstuddu dagskrá, sem borin er fram af hv. 1. þm. S.-M. (Sv. Ó.), með þeirri smábreytingu, sem hann sjálfur hefir gert á henni.