21.07.1917
Neðri deild: 16. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 879 í C-deild Alþingistíðinda. (3200)

78. mál, útibú frá Landsbanka Íslands í Árnessýslu

Björn Stefánsson:

Það er langt frá, að jeg vilji leggjast á móti þessu máli. Jeg vil að eins skjóta því fram, að það er von mín, að tilgangurinn sje ekki sá, að þetta útibú komist á fyr en Landsbankaútibúið, sem fyrirhugað er á Austfjörðum. Því að ef svo væri, yrði jeg ákveðið að mótmæla því.