05.09.1917
Neðri deild: 52. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 999 í C-deild Alþingistíðinda. (3356)

116. mál, bæjarstjórn á Siglufirði

Frsm. (Pjetur Ottesen):

Jeg hefi engu við að bæta það, sem í nál. stendur. Nefndinni virðist öll sanngirni mæla með því, að Siglufjörður fái kaupstaðarrjettindi, en sjer sjer ekki fært að mæla með því, að það verði samþykt á þessu þingi, sökum þess, að málið er ekki undirbúið sem skyldi.