09.08.1917
Neðri deild: 29. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1126 í C-deild Alþingistíðinda. (3515)
133. mál, misærisskattur af tekjum
Fjármálaráðlierra (B.K.):
Jeg vil að eins leiðrjetta þann misskilning hjá háttv. V.-Sk. (G.Sv.), að stjórnin ætlaði ekki að flytja frv. um framlenging verðhækkunartollslaganna. Jeg sagði einmitt, að hún ætlaði að gera það, þrátt fyrir það, að hún færi þess á leit við háttv. fjárhagsnefnd að flytja það, en það gerði hún að eins til að spara það að síma um það út til konungs. Stjórninni þótti rjettara að byggja ekki eingöngu á áliti fárra manna nefndar, heldur láta þingið í heild sinni skera úr því. Landssjóður þarf auknar tekjur. Jeg ætla ekki að fara inn á einstök atriði í frv. háttv. þm. Dala. (B.J.), en benda þó að eins á, af því að háttv. flm. (B.J.) benti sjálfur á það, að eigi getur komið til mála að skylda bankana til að segja frá innieign sparisjóðsinneigenda, því að það verður að eins til þess, að menn taka fje sitt út úr innlendu bönkunum og flytja það í útlenda banka.