15.09.1917
Neðri deild: 61. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1159 í C-deild Alþingistíðinda. (3559)

188. mál, kjötþurkun

Bjarni Jónsson:

Má jeg benda á, að það er ekki sennilegt, ef tilfæringarnar reynast ónógar, að leyfishafi haldi þeim í dýru verði eða selji þær dýrt, eða hafi ánægju af að sitja með þær og láta þær draga rentur sjer í óhag, heldur mundi hann láta forgöngumenn nýju aðferðarinnar fá þær, gegn hæfilegri þóknun. Hættan er ósýnileg.