07.09.1917
Efri deild: 50. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 2333 í B-deild Alþingistíðinda. (3734)

Þingstörfin

Forseti:

Í dag hafa verið afgreidd 46 lög frá þinginu; 43 frv. hafa verið feld, en 23 frv. eru enn eftir.

Þingstörfin hafa víst aldrei fyr gengið svo vel — staðið svo vel á viku fyrir þinglausnir.

Skrifstofustjórinn hefir haft orð á því, síðan leið á þingið, að þingvinnan gengi greiðar en vant er — áður oft svo, að mikill þorri þingmála hefir verið afgreiddur í skjótum hasti síðustu dagana.

Ástæðan eru þingsköpin og fastanefndirnar.

Jeg vil þakka fjárveitinganefnd Ed. fyrir fljótt unnið starf.