08.09.1917
Neðri deild: 55. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 2334 í B-deild Alþingistíðinda. (3739)

Þinglenging

Forseti:

Jeg skal leyfa mjer að tilkynna háttv. deild, að jeg hefi meðtekið tilkynningu frá hæstv. forsætisráðherra um það, að þar sem nú er sá tími útrunninn, sem Alþingi mátti eiga setu, og störfum er ekki enn lokið, þá er þingið framlengt til 15. þ. m., að þeim degi meðtöldum.