02.07.1917
Efri deild: 1. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 23 í B-deild Alþingistíðinda. (3765)

Skipun fastanefnda

Forseti:

Þar sem Halldór Steinsson, þm. Snæf., er áður kosinn í tvær fastanefndir, og enginn þingmaður má eiga sæti í fleirum en tveimur fastanefndum. þá getur hann ekki komist í þessa nefnd, og fer því ekki fram hlutkesti milli hans og háttv. þm. Vestm., heldur úrskurðast, að Karl Einarsson er kosinn þriðji maður í nefndina.