11.09.1917
Efri deild: 54. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 2051 í B-deild Alþingistíðinda. (3787)

47. mál, styrkur til búnaðarfélaga

Atvinnumálaráðherra (S. J.):

Hún er lítil, þingsályktunartillagan sú, sem hjer liggur fyrir. Hún er komin frá háttv. Nd. og gekk þar fram umræðulítið; ástæðan til þess, að hún hefir komið fram, er að erfitt hefir verið að fá ýms efni til bygginga, t. d. sement, og því er nauðsynlegt að veita þennan frest.

Jeg vil því mæla með, að tillagan nái fram að ganga.