21.08.1917
Neðri deild: 39. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 46 í B-deild Alþingistíðinda. (5)

1. mál, fjárlög 1918 og 1919

Framsm. fjárveitinganefndar (Bjarni Jónsson):

Jeg stend að eins upp til að lýsa yfir því, að fjárveitinganefnd telur enga þörf að taka þátt í umræðum að þessu sinni, en vill geyma að gera grein fyrir tillögum sínum, þar til við 2. umr. Ef einhverjir hafa eldhúsverkum að gegna, þá geta þeir þess vegna byrjað á þeim nú þegar.