01.08.1917
Neðri deild: 22. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 992 í B-deild Alþingistíðinda. (503)

19. mál, ráðstafanir út af Norðurálfuófriðnum

Frsm. (Einar Arnórsson):

Jeg bjóst við, að annar væri framsögum. í þessu máli, en það er ljett verk og löðurmannlegt. Hjer er að eins að ræða um dálitla skýringu á lögum 1. febrúar 1917, sem ekkert er við að athuga.