07.08.1917
Efri deild: 24. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1000 í B-deild Alþingistíðinda. (528)
22. mál, vörutollur
Fjármálaráðherra (B. K.):
Stjórnin hefir leyft sjer að bera þetta frv. fram. Eins og mönnum mun kunnugt voru lög þessi framlengd á þinginu 1915 til ársloka 1917. Það er vitanlegt, að fjárhagur landsins má ekki við því, að þessar tekjur falli niður við áramótin, enda er fjárlagafrv. það, sem nú liggur fyrir þinginu, bygt á þeim. Jeg geng út frá því, að háttv. deild muni samþykkja ákvæði frv. um, að lögin gildi til janúarbyrjunar 1919.
Fleira hygg jeg ekki þurfa að taka fram, enda er málið öllum kunnugt. Jeg sje ekki ástæðu til þess að stinga upp á, að málinu verði vísað til nefndar, af því að enginn vafi mun leika á, að það eigi fram að ganga.