04.07.1917
Efri deild: 2. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1056 í B-deild Alþingistíðinda. (643)

9. mál, sjúkrasamlög

Forseti:

Hjer er um tvær till. að ræða. Þessar tvær till. eru hliðstæðar, önnur er sú að vísa málinu til allsherjarnefndar, hin að vísa því til fjárhagsnefndar. Um þessar till. er hægt að greiða atkv. í einu lagi, þannig, að þeir, sem vilja vísa málinu til allsherjarnefndar, segi já, og þeir, sem vilja vísa málinu til fjárhagsnefndar, segi nei.