12.07.1917
Efri deild: 7. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1059 í B-deild Alþingistíðinda. (652)

9. mál, sjúkrasamlög

Forseti:

Mál það, er jeg hefi áður tilkynt háttv. deild að von væri á hingað, verður nú borið upp í háttv. Nd., og er því hæpið, að það komist hingað. Oss læknum hjer hefir því komið saman um, að gott væri að nefnd væri skipuð til að athuga þetta mál.

Það er till. frá háttv. 2. þm. G.-K. (K. D.), að málinu verði vísað til nefndar.