22.08.1917
Neðri deild: 40. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1069 í B-deild Alþingistíðinda. (680)

10. mál, fiskiveiðasamþykktir og lendingasjóður

Frsm. (Björn Stefánsson):

Jeg sje, að engar brtt. hafa komið fram síðan málið var til 2. umr. Jeg hefi því engu við að bæta það, sem jeg þá sagði, og leyfi mjer að mælast til, að málið verði afgreitt frá deildinni.