23.08.1917
Efri deild: 37. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1074 í B-deild Alþingistíðinda. (692)
12. mál, vegir
Atvinnnmálaráðherra (S. J.):
Það er að vísu rjett, að núverandi landsverkfræðingur hefir ekki athugað vegarstæði þau, sem 2. gr. frv. ræðir um, en þau hafa margsinnis verið athuguð af herra Jóni Þorlákssyni, fyrv. landsverkfræðingi. Það sjest á skjölum málsins, að ekki er með öllu ágreiningslaust um, hvar helst eigi að leggja þjóðveginn, en jeg get getið þess, af því að jeg er talsvert kunnugur á þessum slóðum, að ákvæði um þjóðveginn þurfa ekki að koma neitt í bága við Hvammstangaveginn. Jeg get því fallist á brtt. nefndarinnar með þeim skilningi, að byrjað verði á brautinni frá Hvammstanga.