30.08.1917
Neðri deild: 47. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1076 í B-deild Alþingistíðinda. (698)

12. mál, vegir

Frsm. (Þórarinn Jónsson):

Jeg vildi leyfa mjer að geta þess, að frv. þetta er komið frá stjórninni, hefir legið fyrir samgöngumálanefndum beggja deilda og gengið einróma gegnum háttv. Ed. Á því hafa verið gerðar töluverðar breytingar þar, eins og nál. á þgskj. 516 sýnir, en jeg sje ekki ástæðu til að fara að skýra þær nú við 1. umr. málsins. Þær hafa verið gerðar í samráði við vegamálastjórann. Jeg vona svo, að frv. fái að ganga óhindrað til 2. umr., og læt svo máli mínu lokið að sinni.