20.08.1917
Neðri deild: 38. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1083 í B-deild Alþingistíðinda. (716)

15. mál, mælitæki og vogaráhöld

Frsm. (Einar Arnórsson):

Jeg skal einungis geta þess, að þetta frv. er komið frá stjórninni. Háttv. Ed. samþykti frv. óbreytt að efni til. Allsherjarnefndin hefir nú athugað frv., og leggur hún til, að það verði samþykt með nokkrum orðabreytingum. Nefndin lítur svo á, að þetta sje nauðsynjamál, og vill mæla hið besta með því, að það nái að ganga fram.