18.07.1917
Efri deild: 10. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1163 í B-deild Alþingistíðinda. (807)

21. mál, framkvæmd eignarnáms

Frsm. (Magnús Torfason):

Það var ekki ætlun nefndarinnar að gera neina efnisbreytingu á þessari málsgr. Og jeg get ekki sjeð, að slík breyting hafi verið gerð með brtt. nefndarinnar, eins og málsgr. er orðuð þar. Það leggur sig sjálft, að þegar að eins er um tvo að ræða, sem eiga að greiða matskostnaðinn, hlýtur annarhvor að eiga að greiða hann.