10.08.1917
Efri deild: 27. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1176 í B-deild Alþingistíðinda. (834)

28. mál, áveita á Flóann

Eggert Pálsson:

Jeg býst við því, að háttv. deild muni mál þetta alkunnugt. Áveita á Flóann hefir verið á dagskrá þingsins undanfarandi ár, og tel jeg því óþarfa að fara að gefa almennar upplýsingar um málið. En málið er svo þýðingarmikið, að sjálfsagt er að vísa því til nefndar, og vil jeg styðja tillögu hæstv. atvinnumálaráðherra um að vísa því til landbúnaðarnefndar.