04.08.1917
Neðri deild: 25. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1259 í B-deild Alþingistíðinda. (980)

61. mál, málskostnaður einkamála

Frsm. (Einar Arnórsson):

Jeg get látið mjer nægja mjög skamma framsögu í þessu máli. Allsherjarnefndin hefir orðið sammála um það að ráða háttv. deild til að samþykkja frv., eiginlega óbreytt, því að brtt. á þgskj. 114 miðar eingöngu að því að leiðrjetta tvær villur í orðalagi frv. og svo eina prentvillu. Þetta eru svo auðsæ atriði, að jeg tel gersamlega óþarft að eyða orðum eða tíma til þess að skýra þau frekar.