15.05.1918
Neðri deild: 23. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 987 í B-deild Alþingistíðinda. (1036)

52. mál, rannsókn mómýra

Forsætisráðherra (J. M.):

Jeg veit ekki, hvaða upplýsingar hafa legið fyrir, þegar þessi till. var samin. Jeg býst við, að þeir háttv. þm , sem bera hana fram, hafi má ske fengið upplýsingar, sem liggja í stjórnarráðinu um þetta mál. En ef það væri ekki, mundi jeg finna ástæðu til þess að styðja þá uppástungu, sem kornið hefir fram, um að taka málið út af dagskrá. Jeg vil geta þess, að talsveiðar upplýsingar eru fyrir hendi um rannsókn mómýra. Jeg fjekk þær þegar jeg fór utan síðast og afhenti þær atvinnumálaskrifstofunni. Veit jeg ekki, hvað við þær hefir verið gert síðan.