17.05.1918
Neðri deild: 25. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 1011 í B-deild Alþingistíðinda. (1043)
52. mál, rannsókn mómýra
Atvinnumálaráðherra (S. J):
Það er í tilefni af einu atriði í ræðu háttv. þm. S.-Þ. (P. J) að jeg stend upp. Það er skógarhöggið. Skógræktarstjórinn hefir snúið sjer til stjórnarráðsins með beiðni um peninga til þess að geta látið grisja skóga á nokkrum stöðum, og hefir honum verið heitið nokkru fje úr landssjóði, til þess að geta látið byrja á vinnunni. Geri jeg ráð fyrir, að fje þetta verði tekið af því fje, sem ætlað er í fjárlögunum til skógræktar; þótti ekki nema sjálfsagt að bregðast vel við og láta nokkurt fje af hendi, svo að ekki þyrfti að stranda á fjárskorti, að byrjað yrði á skógarhöggi.
Viðvíkjandi bátunum skal jeg geta þess, að símað hefir verið út um alt land, eftir till. bjargráðanefndar, með fyrirspurnir um, hvað til væri af róðrarbátum í hverju lögsagnarumdæmi. Þegar þessi svör koma, verður hægt að taka ákvarðanir í samræmi við þau.