25.05.1918
Efri deild: 27. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 1018 í B-deild Alþingistíðinda. (1052)

52. mál, rannsókn mómýra

Halldór Steinsson:

Jeg man ekki betur en að samskonar till. og þessi væri feld hjer í háttv. Ed. á síðasta þingi, og jeg sje ekki, hvers vegna fremur ætti að samþykkja hana nú Jeg hefi hins vegar heyrt, að hæstv. stjórn hafi veitt manni styrk til þess að rannsaka móvinslu með vjelum. Jeg vil leyfa mjer að spyrja hæstv. atvinnumálaráðherra, hvort það sje rjett, að slíkur styrkur hafi veittur verið?